Lífið

„Bangsar eru í raun partur af fjöl­skyldunni“

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Eyja Sigríður, bangsalæknir, með bangsa sem hún saumaði sjálf nýverið.
Eyja Sigríður, bangsalæknir, með bangsa sem hún saumaði sjálf nýverið. Vísir/Arnar

Ekkert verkefni er ómögulegt fyrir Bangsalækninn svokallaða. Að hennar mati eru bangsar partur af fjölskyldunni og fátt veitir henni meiri gleði en að gera þá eins og nýja.

Eyja Sigríður Aðalsteinsdóttir hefur alla tíð haft áhuga á saumaskap og sjö ára gömul saumaði hún sinn fyrsta bangsa. Hún stofnaði nýlega Facebook síðuna Eyja bangsalæknir en hún tekur að sér að hjúkra mjúkdýrum sem þurfa á hverskyns aðhlynningu að halda. Verkefnin eru allt frá góðum þvotti og blettahreinsun upp í meiriháttar saumaskap.

Þessa dagana er Eyja að hlúa að bangsa sem hefur fengið mikla ást í gegnum árin.

„Þetta er Mína Mús, hún er jafn gömul og ég, 27 ára. Hún er mjög vel farin en það voru komin göt og fötin vantaði.“

Talsvert mikil vinna hefur farið í að gera upp hina 27 ára gömlu Mínu Mús, sem meðal annars fékk handmálað kjól frá Bangsalækninum.Aðsend

Það reyndist þó þrautinni þyngra að finna rétta efnið í fötin sem þurfti að vera rautt með hvítum doppum. Eyja dó þó ekki ráðalaus. 

„Ég endaði á að handmála það. Ég gerði stimpla og notaði svo pensla til að dekkja doppurnar.“

Bangsar partur af fjölskyldunni

Svona verkefni taka alveg upp í fjóra til fimm daga. Sumir kunna mögulega að spyrja sig hvort það væri ekki hreinlega einfaldast að kaupa nýjan bangsa, en Eyja er ekki á því.

„Bangsar eru í raun partur af fjölskyldunni. Nýir bangsar eru ekki sömu bangsarnir. Þeir líta eins út en það er ekki þessi tengsl, ekki þessi ást sem fylgir.“

Uppáhalds verkefnið sem Eyja hefur tekið á sér er þessi kanína.

Aðspurð um hvert sé uppáhalds verkefnið hingað til nefnir Eyja þessa kanínu.Aðsend

„Hún var alveg grá. Feldurinn var svo skítugur, hún hafði aldrei farið í þvott. Það tók þrjá daga að gera þetta en í lokin var hún eins og ný.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×