Fótbolti

Fyrir­liði 21 árs landsliðs Svía skiptir um lands­lið

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Armin Gigovic klæðist ekki aftur sænska landsliðsbúningnum.
Armin Gigovic klæðist ekki aftur sænska landsliðsbúningnum. Getty/Jeroen van den Berg

Armin Gigović hefur verið fyrirliði 21 árs landsliðs Svía í fótbolta en spilar aldrei fyrir A-landsliðið. Hann ákvað að skipta um landslið.

Hinn 22 ára gamli Gigović ætlar að spila fyrir bosníska landsliðið í framtíðinni. Gigović er í nýjasta hóp A-landsliðs Bosníu.

„Það er ljóst að við erum mjög vonsviknir en við virðum ákvörðun Armin,“ sagði Kim Källström, yfirmaður knattspyrnumála hjá sænska sambandinu. Sænska ríkissjónvarpið, SVT, segir frá.

Gigović spilar með danska liðinu FC Midtjylland og hefur gert það frá árinu 2023. Hann er öflugur miðjumaður.

Hann lék alls 33 leiki fyrir yngri landslið Svía þar af 21 fyrir sænska 21 árs landsliðið.

Faðir hans er frá Bosníu og lék knattspyrnu í heimalandinu. Móðir hans er frá Serbíu. Hann sjálfur fæddist í Lundi í Svíþjóð árið 2002.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×