Veður

Víða blautt í dag og varað við asahláku

Lovísa Arnardóttir skrifar
Það er nauðsynlegt að klæða sig eftir veðri.
Það er nauðsynlegt að klæða sig eftir veðri. Vísir/Vilhelm

Í dag gengur í sunnan strekking eða allhvassan vind með súld eða rigningu sunnan- og vestanlands. Norðaustan til verður úrkomuminna. Síðdegis bætir í rigningu, og verður talsverð rigning á Vesturlandi. Hiti verður víða fimm til 12 stig, hlýjast í hnúkaþey fyrir norðan og austan.

Gular veðurviðvaranir hafa verið gefnar út vegna asahláku á Vestan- og Norðanverðu landinu. Viðvörunin tók gildi klukkan sex í morgun og gildir til tvö í nótt. Þar kemur fram að búast megi við miklum leysingum, auknu afrennslu og vatnavöxtum í ám og lækjum. Mikilvægt er að hreinsa frá niðurföllum til að forðast vatnstjón vegna rigningar og leysingavatns.

Viðvaranir tóku gildi klukkan sex í morgun og gilda til tvö í nótt. Mynd/Veðurstofan

Í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar kemur fram að samfara svona hlýindum ryðji ár og lækir sig gjarnan. Víða á norðurhelmingi landsins eru vatnsfarvegir ísilagðir. Stundum myndast klakastíflur sem geta valdið staðbundnum flóðum og jafnvel haft áhrif á vegi, ræsi og brýr. Sama á við ræsi og niðurföll í þéttbýli þar sem við á, þá þarf að hreinsa frá svo vatn komist greiðlega í burtu.

Í nótt og fyrramálið styttir svo aftur upp. Þá verður yfirleitt bjart á morgun og áttin er suðvestlægari. Á Norðurlandi verður suðvestan hvassviðri eða stormur á stöku stað, en hægari sunnantil. Um kvöldið dregur úr vindi. Kólnar aðeins í veðri.

Á vef Vegagerðarinnar, umferdin.is, kemur fram að víða á landinu sé hálka og hálkublettir. Þá er einnig víða krapi.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á mánudag og þriðjudag:

Fremur hæg suðlæg eða breytileg átt og léttskýjað, en skýjað með köflum við vesturströndina. Hiti 4 til 12 stig, hlýjast á Suðurlandi.

Á miðvikudag:

Austan 3-8 m/s, en suðaustan 8-13 við suðvesturströndina. Víða bjartviðri, en skýjað með köflum við ströndina sunnantil. Hiti 5 til 0 stig vestanlands, en um frostmark fyrir austan.

Á fimmtudag og föstudag:

Útlit fyrir norðlæga átt og bjartviðri suðvestanlands, hiti 2 til 8 stig að deginum, en skýjað norðaustantil og stöku él, frost 0 til 6 stig.

Nánar á vef Veðurstofunnar. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×